Í gær voru ljósin tendruð á jólatrénu við Félagsheimilið á Hvammstanga.

Vegna sóttvarnatakmarkana var ekki hefðbundin dagskrá við félagsheimilið.

Börn í 1. – 4. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra voru þó viðstödd, gengu kringum jólatréð og sungu jólalög. Jólasveinar litu við og Sr. Magnús Magnússon flutti ávarp. 

Horfa má á brot af upptökunni hér.

Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að njóta aðventunnar í faðmi fjölskyldunnar.

Mynd/Húnaþing vestra