Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur haldið uppi öflugu eftirliti með rjúpnaveiðum eins og jafnan.
Kannað hefur verið með réttindi veiðimanna, skotvopn og fl. Um síðastliðna helgi var rætt við marga veiðimenn sem voru að koma af veiðum og reyndust flestir þeirra vera með öll sín mál í lagi, en tveir þeirra reyndust ekki hafa gild veiðikort.
Var hald lagt á afla veiðimannanna og skotvopn. Hvetur lögreglan á Norðurlandi vestra, veiðimenn til að gæta þess að öll leyfi hver sem þau eru séu í lagi. Í lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum frá 1994, segir svo í 11.gr.:
Allir sem stunda veiðar á villtum dýrum, öðrum en rottum, músum og minkum, skulu afla sér veiðikorts gegn gjaldi, sbr. 3. mgr. Veiðikort þarf ekki til eggjatöku. Umhverfisstofnun annast útgáfu veiðikorta. Á veiðikorti skal getið nafns handhafa, gildistímabils og þeirra tegunda sem viðkomandi hefur heimild til að veiða. Korthafi skal ætíð bera kortið á sér á veiðum. Hann skal framvísa því ef óskað er. Jafnframt segir í 21.gr. sömu laga:
Brot gegn lögum þessum og reglum, sem settar verða samkvæmt þeim, varða sektum eða fangelsi allt að 2 árum og sviptingu skotvopna- og veiðileyfis.
Mynd: Lögreglan á Norðurlandi vestra