Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir vitnum eða upplýsingum vegna atviks á bifreiðastæði við Hofsbót, sunnan við Bifreiðastöð Oddeyrar, BSO um klukkan 15:30 í dag, mánudag.
Tveir aðilar virðast hafa átt þar í átökum og annar þeirra eða báðir veist að þeim þriðja er kom þar að. Segir lögregla vitað að vitni voru að atvikinu en hún hafi ekki náð til þeirra allra. Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um málið og lögregla hefur ekki haft samband við eru beðnir að setja sig í samband við lögregluna á Akureyri, annaðhvort með skilaboðum gegnum Facebook eða með því að hringja í 112.