Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Strandgötu við Bifreiðastöð Oddeyrar (BSO) aðfaranótt sunnudagsins 10.10.sl.

Lögreglan óskar einnig eftir að komast í samband við ökumann hvítrar Land Rover Discovery bifreiðar sem sótti aðila í Kaupvangsstræti við veitingastaðinn Rub umrædda nótt, skömmu eftir líkamsárásina.

Lögreglan biður þá sem hafa upplýsingar sem gætu tengst þessu að hafa samband við lögregluna í gegnum síma 444 2800, netfangið nordurland.eystra@logreglan.is eða senda einkaskilaboð á facebook síðu lögreglunnar.