Stjórnendur Skálarhlíðar hafa tekið þá ákvörðun að loka húsnæði Skálarhlíðar fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 6. apríl 2020 þar til annað verður formlega tilkynnt. Er þetta gert í samráði og með fullu samþykki allra íbúa Skálarhlíðar. Með þessari ráðstöfun er verið að fylgja eindregnum tilmælum framvarðasveitar Almannavarna Íslands.

Heilsa og velferð íbúanna þarf alltaf að vera í forgangi!

Þar sem íbúar Skálarhlíðar eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhópi tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.

Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar Skálarhlíðar veikist af Kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki.  Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessara ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.

Jafnframt verður umferð allra annara en nauðsynlegs starfsfólks á vakt, takmörkuð inn í Skálarhlíð.

Við bendum ykkur á að hafa samband við: Helgu Hermannsdóttur, sími 898-1147

Mynd: af vefsíðu Fjallabyggðar