Skíðavertíð Skíðafélags Dalvíkur er lokið og fer lokahóf fram í Dalvíkurskóla miðvikudaginn 2. maí kl.18:00.
Veittar verða viðurkenningar fyrir mót og góðan árangur í vetur.

Einnig verða lukkumiðar dregnir út og að lokum er öllum boðið í pylsugrill.
Hlökkum til að hitta ykkur.
Stjórn SKD og foreldrafélagið

Frétt og mynd tekin af vef: Skíðafélags Dalvíkur