Core ehf. innkallar einnig sælgætið „Sura Vattenmelon bitar“ 80g með Best fyrir dagsetningu 05-2022 og framleiðslunúmeri L-0129 vegna aðskotahlutar úr málmi sem fannst í vörunni. Varan er seld í Bónus, Hagkaup, Fjarðarkaup og Heimkaup.

Ábending barst Matvælastofnun í kjölfar birtingar fyrri fréttatilkynningar. Stofnunin upplýsti heilbrigðiseftirlitið og hefur fyrirtækið hafið innköllun á sælgætinu.

Matvælastofnun varar einnig við neyslu á sænsku sælgæti „S-märke surt skum“, sem heildverslun Core ehf. flytur inn, vegna aðskotahlutar úr málmi sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.

Matvælastofnun fékk upplýsingarnar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli á markaði og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu/best fyrir dagsetningu:

  • Vörumerki: Candy people
  • Vöruheiti: S-Märke Surt skum 70 g
  • Innflytjandi: Core ehf.
  • Best fyrir dagsetning: 14-08-2022 M4
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup