Ofbeldishegðun í samfélaginu hefur aukist töluvert undanfarin misseri og hefur lögreglan á Norðurlandi eystra miklar áhyggjur af stöðunni.
Meðal verkefna embættisins síðustu helgar voru meðal annars mál þar sem að manni var kastað fram af svölum. Í öðru máli var ekið á mann af ásetningi þar sem hann var gangandi á göngustíg. Í allt öðru máli var ökumanni veitt eftirför og við fyrirhugaða handtöku ók sakborningur fyrirvaralaust á lögreglubíl og voru tveir lögreglumenn í mikilli hættu sem stóðu við bílinn. Á föstudag ógnaði maður lögreglumanni með hnífi við handtöku í miklu návígi svo ekki mátti muna miklu að illa færi. Lögregla hefur haldlagt mikið af fíkniefnum undanfarið og rannsóknir í gangi er lúta að skipulagðri brotastarfsemi. Þá eru ótalin heimilisofbeldismál, líkamsárásir og kynferðisbrot sem eru því miður veruleiki.
Aðgerðir og verkefni lögreglunnar munu áfram taka mið af vinnu í forvörnum og mun lögregla beita sér sérstaklega gegn hvers kyns vopnaburði með það að leiðarljósi að tryggja öryggi lögreglumanna og almennings.
Á það er bent að vopnaburður á almannafæri er bannaður og gildir þá engu hvort vopn sé sýnilegt eða borið innanklæða. Viðurlög við fyrsta broti er að lágmarki 150.000 kr. sekt og færist brotið á sakaskrá.
Mynd/aðsend