1. maí 2018 fór fréttavefurinn Trölli.is í loftið, er hann því tveggja ára í dag. Forsvarsmenn vefsins eru hjónin Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason.

Síðan er alhliða frétta-, upplýsinga- og auglýsingavefur fyrir svæðið frá Húnaþingi vestra og austur í utanverðan Eyjafjörð. Einnig tekur vefurinn við nafnlausum spurningum frá lesendum og reynir að fá svör við þeim. Lesendur hafa þessi tvö ár verið duglegir að senda inn fréttaábendingar og eru þeir hvattir til að halda því ótrauðir áfram.

Einnig hefur Trölli.is haft liðsinni góðra greinahöfunda þessi tvö ár og megi þeir hafa ómælda þökk fyrir.

Lesendafjöldi fór mest í 41.656 á mánuði

Trölli.is notast við þjónustu Modernus á Íslandi, sem er samræmd vefmæling. Þar fást upplýsingar um fjölda lesenda fyrir hvern mánuð, og síðuflettingar.

Vefurinn fór nokkuð vel af stað, og var með 30.505 síðuflettingar fyrsta mánuðinn. Hann er í stöðugri sókn og nú í apríl 2020 voru síðuflettingar alls 128.066.

Lesendafjöldi á einum mánuði á árinu fór mest í 41.656 og alls hafa verið skrifaðar 3.772 fréttir og greinar frá því vefurinn fór í loftið.

Vefurinn þjónar fyrst og fremst hlustunarsvæði FM Trölla, en lætur sér ekkert óviðkomandi og hafa ófár fréttir frá fréttavefnum ratað í stóra landsmiðla.

Útvarpstöðin FM Trölli verður 10 ára í sumar

Auk fréttasíðunnar Trölla.is reka Gunnar Smári og Kristín útvarpstöðina FM Trölla, sem er með FM útsendingar í utanverðum Eyjafirði, Ólafsfirði, Siglufirði, Skagafirði, Hvammstanga og á netinu um víða veröld.

Til að hlusta á FM Trölla á netinu er hægt að nota radio.garden, app og vefsíðu sem kallast spilarinn, auk þess er valhnappur til að hlusta hér efst á síðunni trolli.is. Einnig er hér á síðunni sérstakur valhnappur: “Skipa-Trölli” sem er lágbita-straumur með einföldu viðmóti, (aðeins 48kbs) sem hentar þeim sem eru með takmarkaðan hraða á nettengingu, eða þurf að greiða óhóflegt gjald fyrir niðurhal.

Á sérsíðu FM Trölla er auðvelt að hlusta á upptökur af þáttum sem eru á dagskrá um þessar mundir, s.s. Undralandið, Tíu Dropa og The Brian Callaghan radio show.

Auk þess vinnur Gunnar Smári við hljóðvinnslu, hljóðupptökur, forritun, nýsköpun og rafeindasmíði. Kristín rekur ljósmyndastofuna KS Art og býður upp á stúdíó, frétta- og listrænar myndir af öllum toga. Bæði hafa þau fengist við fréttaskrif og var Gunnar Smári um tíma vefstjóri Sigló.is

Trölli.is þakkar lesendum og auglýsendum fyrir samstarfið þessi tvö ár, og vonast til að saman gerum við enn betur á því næsta.

Trölli.is og FM Trölli eru reknir af Hljóðsmáranum ehf – kt. 601299.4539
Skráning í Fyrirtækjaskrá.
Skráning á vef Fjölmiðlanefndar.
Skráning á vef Póst- og fjarskiptastofnunar.
Gunnar Smári Helgason er félagi í Blaðamannafélagi Íslands.