15. nóvember nk. verða starfsmenn Markaðsstofu Norðurlands á ferðinni í Fjallabyggð og verða með „opnar skrifstofur”  í Tjarnarborg. Þangað geta allir komið sem vilja ræða málin, kynnast starfsemi MN betur eða kynna sína starfsemi fyrir MN.

Þetta er tilvalið tækifæri til að afla sér upplýsinga um hvernig koma megi betri tengslum á við ferðaskrifstofur, hvernig nýta má heimasíðu MN, myndabankann og samfélagsmiðla. Um leið er þetta tækifæri til að efla samskiptin á milli MN og samstarfsfyrirtækja, ná samtölum í persónu og skapa betri tengsl.

Fulltrúar MN verða, Rögnvaldur Már Helgason, verkefnastjóri upplýsingaþjónustu, útgáfu og almannatengsla og Katrín Harðardóttir, verkefnastjóri ferðaskrifstofa og þróunar.

Ekki er þörf á að skrá sig á fundina, en mælt með að senda póst á fangið rognvaldur@nordurland.is ef þið hafið í hyggju að mæta. Það er þó ekki skylda, það er sjálfsagt mál að kíkja við eftir því sem hentar.

Viðvera í Tjarnarborg í Ólafsfirði 15. nóvember nk. kl. 15:45-16:45 og svo frá 19:00-19:45 (fyrir og eftir haustfund Fjallabyggðar)