Gengið hefur verið frá sölu á 54,5 % hlut í Vélfagi ehf til rússneska fyrirtækisins Norebo, eins stærsta útgerðarfélags heims. Stofnendur Vélfags, Bjarmi Arnfjörð Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir seldu hlut í félaginu og um leið var hlutafé aukið. Kaupverð er trúnaðarmál.

Viðskiptin eru afar ánægjuleg fyrir Vélfag og gríðarleg viðurkenning fyrir eigendur og starfsfólk fyrirtækisins. Mikill fengur er í Norebo sem hluthafa og samstarfsaðila, kaupin styrkja mjög stoðir Vélfags og búa fyrirtækið undir aukið þróunarstarf og verulega aukningu í framleiðslu.

Vélfag var stofnað árið 1995 af þeim Bjarma og Ólöfu. Fyrst í stað var fyrirtækið í þjónustu við fyrirtæki í sjávarútvegi en fljótlega hófu starfsmenn Vélfags að þróa og framleiða vélar fyrir fiskvinnslu. Óhætt er þó að segja að fyrirtækið hafi lagt mikinn metnað og kraft í þróun á vélum, sem hefur skilað mjög góðum árangri.

Vélfag er framsækið nýsköpunarfyrirtæki, sem byggir á öflugu frumkvöðlastarfi. Fyrirtækið hefur hlotið nýsköpunarverðlaun og á síðasta ári fékk það nýsköpunarstyrk að upphæð 50 milljónir frá Rannís Tækniþróunarsjóði til þróunar á vél, sem er í einkaleyfisferli. Í farvatninu eru stórir sölusamningar og óhætt að segja að framundan séu mjög áhugaverðir og bjartir tímar hjá Vélfagi.

Stofnendur Vélfags, Bjarmi og Ólöf, gleðjast mjög á þessum tímamótum: „Við fögnum þessum merka og mikilvæga áfanga í sögu Vélfags. Við erum sannfærð um að þetta sé mikið gæfuspor enda mun aðkoma Norebo skjóta styrkum stoðum undir Vélfag til að takast á við krefjandi framtíð og tryggja jafnframt áframhaldandi þjónustu og gæði fyrir bæði núverandi og framtíðar viðskiptavini. Framundan eru gríðarmiklar áskoranir í vinnslu og meðferð sjávarafurða í breyttri heimsmynd. Við hlökkum mikið til að takast á við þessi spennandi tækifæri með því öfluga og metnaðarfulla fyrirtæki sem Norebo er.“

Stjórn félagsins munu skipa Finnbogi Baldvinsson fyrir hönd Bjarma og Ólafar, en aðrir í stjórn eru Soling Yip, fjármálastjóri Norebo Overseas Holding og Pavel Kosolapov, framkvæmdastjóri tæknimála hjá Norebo Group.

Framkvæmdastjórar Vélfags verða sem áður Bjarmi Arnfjörð Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir.

Skoða á vefsíðu Vélfags