Framhaldsskólakennari í félagsgreinum og sálfræði
Menntaskólinn á Tröllaskaga auglýsir eftir framhaldsskólakennara í 100% stöðu
til að kenna félagsgreinar og sálfræði frá 1. ágúst 2021.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennarar annast, taka þátt í og bera ábyrgð í starfi sínu samkvæmt reglugerð 1100/2007, 7. grein.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari og vera með sérhæfingu til að kenna bóknámsgreinar á 2. – 4. hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, auk almennrar hæfni á viðkomandi fræðasviði sem krafist er við námslok á stigi 1.2 samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður eins og stendur í lögum nr. 95 frá 1. júli 2019.
Að auki þarf viðkomandi kennari að
- vera lipur í notkun upplýsingatækni og hafa reynslu af notkun hennar í námi- og kennslu
- vilja vinna eftir einkunnarorðum skólans; frumkvæði – sköpun – áræði
- hafa reynslu af fjarkennslu-, fjarvinnu og fjarsamstarfi
- mjög góða samskipta- og samstarfshæfni
- vilja til þróunar í starfi og starfsháttum
Eftirsóknarvert er ef umsækjendur hafa menntun, þekkingu og reynslu sem nýtist skólanum umfram það starf sem er auglýst.
Skólinn leggur áherslu á fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir, virka notkun kennslukerfis (Moodle) og fjölbreytt námsmat með sérstakri áherslu á vendikennslu og leiðsagnarmat. Reynsla á því sviði er því mikill kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Einkunnarorð Menntaskólans á Tröllaskaga eru: Frumkvæði, sköpun og áræði.
“Við leggjum áherslu á gott samstarf við samfélagið og umhverfi skólans.”
Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans við KÍ. Auglýsingin gildir í 6 mánuði.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2021
Nánari upplýsingar veita:
Lára Stefánsdóttir – lara@mtr.is – 460 4240
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir – villa@mtr.is – 460 4240
Smelltu hér til að sækja um starfið