Þátturinn Miðvikan er á dagskrá FM Trölla í dag, miðvikudaginn 14. febrúar frá kl. 16:00 – 18:00.

Ástin mun ráða ríkjum í Valentínusarþætti Miðvikunnar. Í þættinum ætlar Andri að spila ástarlög úr öllum áttum og þú getur hjálpað honum með því að senda inn ástar-óskalag í tilefni dagsins.

Stjórnandi þáttarins er Andri Hrannar sem sendir út beint frá stúdiói 2 á Gran Canaria og er þátturinn einnig í mynd á Twitch.

Andri býður hlustendum í óvissuferð, sérstaklega þeim sem eru á leið heim frá vinnu, en allir aðrir eru líka velkomnir.

Hlustið á Miðvikuna á FM Trölla á miðvikudögum kl. 16 – 18.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com