Þann 11. febrúar 2020 sýnir hið alþjóðlega verðlaunaða Handbendi Brúðuleikhús verkið Sæhjarta, sem er einleikið brúðuverk fyrir fullorðna í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

Verðlaunaleikhúsið Handbendi Brúðuleikhús kynnir þessa nýju, einleiknu og einstöku brúðulistasýningu fyrir fullorðna. Hennar margslungna furðusaga er sögð með heillandi blöndu brúðuleiks og hefðbundins leikhúss. Sæhjarta endurskapar og endurvekur gömlu sagnirnar um urturnar sem komu á land og fóru úr selshamnum til að búa og elska meðal manna.


Handrit og leikur: Greta Clough
Leikstjórn: Sigurður Líndal Þórisson
Tónlist og hljóðmynd: Júlíus Aðalsteinn Róbertsson
Leikmynd og lýsing: Egill Ingibergsson

Fleiri dagsetningar: 14.19.27. feb – Tjarnarbíó, Reykjavik – kl. 20.00

Ekki ætlað börnum undir 16 ára að aldri. Inniheldur atriði og lýsingar á kynlífi, ofbeldi og nekt.

Handbendi Brúðuleikhús er brúðu/leikhús með höfuðstöðvar á Hvammstanga þar sem leikhúsið setur upp frumsamdar sýningar sem ferðast um allan heim. Leikhúsið er leitt af Gretu Clough, fyrrum listamanni hússins hjá hinu heimsfræga Little Angel Theatre í London. Greta hefur unnið til verðlauna fyrir gæði og frumleika í brúðulistum, og sem leikskáld.  
Sæhjarta er stutt af launasjóði sviðslistamanna og sviðslistasjóði.