Lagt fram umbeðið minnisblað deildarstjóra á 733. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar, er varðar götulýsingu í byggðakjörnum Fjallabyggðar.

Bæjarráð þakkar framlagt minnisblað og felur deildarstjóra tæknideildar að taka saman staðgreint og kostnaðarmetið yfirlit yfir viðhaldsþörf götulýsinga, jarðstrengja sem og lýsingar, og leggja fyrir bæjarráð.

Sjá minnisblað deildarstjóra.