Nemendur Vinnuskólans

Vinnuskólinn er fyrir ungmenni sem nýlokið hafa 8., 9. eða 10. bekk.

Skráning

Forráðamenn þurfa að skrá unglinginn sinn í Vinnuskólann. Skráningin fer fram í íbúagátt Fjallabyggðar, þar sem eyðublað er fyllt út vegna vinnuskóla. Athugið að við skráningu þarf nemandi að eiga bankareikning sem stofnaður er á kennitölu hans.

Vakin er athygli á að árið sem 16 ára aldri er náð verður skattskylda eins og hjá fullorðnum og þarf launþegi að ráðstafa persónuafslætti til vinnuveitanda. Ráðstöfun persónuafsláttar er á ábyrgð launþega. Upplýsingar um hvernig ráðstafa eigi persónuafslætti verða sendar með tölvupósti.

Dagsetningar

Skólinn hefst mánudaginn 8. júní kl. 8.30 hjá öllum. Nemendur búsettir á Siglufirði mæta í Áhaldahús fjallabyggðar. Nemendur búsettir á Ólafsfirði mæta í aðstöðu Áhaldahúss (norðan við Skiltagerð).

Áætlaður lokadagur Vinnuskólans er föstudaginn 31. júlí. Þó gefst ungmennum sem lokið hafa 10. bekk kostur á að vinna til 7. ágúst.

Vinnutími

Ungmenni sem nýlokið hafa 8. bekk: Mætt er fyrir hádegi fimm daga í viku, frá kl.8:30 til kl.12. Einnig er hægt að haga vinnu þannig til ef einstaklingur vill frekar vinna frá 13:00 – 16:30 þá er það í boði líka.Daglegur vinnutími reiknast 3,5 klst. eða 17,5 tímar á viku.

Ungmenni sem nýlokið hafa 9. eða 10. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Unnið er 3,5 klst. fyrir hádegi á föstudögum. Samtals möguleiki á 35 klst. vinnu á viku.

Vinnuskólinn áskilur sér rétt til að takmarka frekar vinnutíma ef skráning fer fram úr áætlunum.

Dagskrá

Almenn störf og áherslur í Vinnuskóla eru garðyrkja, gróðursetning, hirðing á lóðum og opnum svæðum bæjarins. Einnig eru í boði nokkur aðstoðarstörf hjá íþróttafélögum við leikjanámskeið fyrir þau ungmenni sem eru að ljúka 9. eða 10. bekk. Hægt er að merkja við þessi aðstoðarstörf inn á skráningareyðublaðinu. Ofangreindir aðilar fá síðan listann og velja til sín af honum.

Athugið að vinnutími unglinga í aðstoðarstörfum hjá félögum er í einhverjum tilvikum aðlagaður að tímasetningu sumarnámskeiða sem sum hver geta verið fram í ágúst.

Smíðaskóli fyrir börn sem nýlokið hafa 1. – 7. bekk hefur verið rekin 2 undanfarinn ár og gengið vel á Siglufirði.  Hann verður í boði í báðum byggðarkjörnum. Áætlum að hann verði frá 6. – 24. júlí og verði með sama sniði og í fyrra þ.e.a.s. fyrstu tvær vikurnar er hann mánud.-þriðjud. og miðvikudaga og í þriðju viku bætist finmmtudagur við .

Laun

Allar tölur eru án orlofs:

  • Unglingar sem nýlokið hafa 8. bekk 35% af lfl. 117 kr. 675,98 pr.klst. 3,5 klst. á dag mán-fös.
  • Unglingar sem nýlokið hafa 9. bekk 40% af lfl. 117 kr. 772,55 pr.klst. 7 klst. á dag mán-fim 3,5 klst á fös.
  • Unglingar sem nýlokið hafa 10. bekk 60% af lfl. 117 kr. 1.158,73 pr.klst. 6,0 klst. á dag mán-fim 3,5 klst á fös.

Sjá nánar á fjallabyggd.is