• ALLIR sem nota brautina þurfa að vera með hjálm. 
  • Eingöngu eru leyfð reiðhjól, hlaupahjól, hjólabretti og línuskautar í brautinni. Á skólatíma eru reiðhjól ekki leyfð. 
  • Vélknúin ökutæki eru stranglega bönnuð. 
  • Það er bannað að ýta við eða setja hindrun í veg fyrir notanda.  
  • Reynið að forðast það að stoppa í brautinni, ef þið stoppið farið stystu leið út úr brautinni. 
  • Yngri börnum og byrjendum skal gefið gott rými til að ná tökum á brautinni áður en reyndari notendur fara af stað. Byrjendur og þeir sem fara hægar yfir hafa alltaf forgang í brautinni og skal sýnd þolinmæði.  
  • Mælt er með að börn undir 10 ára aldri séu í fylgd eldri forráðamanna. 
  • Það er bannað að taka framúr í brautinni. 
  • Það eru hámark 4 notendur í braut á sama tíma.

         (Ef margir bíða miðast hámarks brautartími hvers við 3 hringi og skal sá fara aftast í röðina)  

  • Notið rampinn til að fara inn og út úr brautinni. 

         Það er bannað að standa eða leggja hjól eða annað við inngangs og útgangs rampinn. 

  • Ef þessum reglum er ekki sinnt þá verður brautinni lokað og hún mögulega fjarlægð. Við berum öll ábyrgð á að notendur fylgi reglunum. 
  • Tilkynnið alvarleg brot á reglum til næsta foreldris og í framhaldi til skrifstofu Dalvíkurbyggðar / íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. 
  • Tilkynnið skemmdir í braut til skrifstofu Dalvíkurbyggðar / íþrótta- og æskulýðsfulltrúa (460-4900) 
  • Ef um alvarlegt slys er að ræða hringið í 1-1-2.


Mynd: Dalvíkurbyggð