Fjallabyggð auglýsir lausar til umsóknar 11 lóðir fyrir einbýlishús og lóðir fyrir eitt parhús.

Lóðirnar eru staðsettar í suðurbæ Siglufjarðar í grónu hverfi. Tilgangur með nýsamþykktu deiliskipulagi fyrir svæðið var að ná óbyggðum lóðum inn í skipulag með skilmálum fyrir nýbyggingar. Markmiðið er að halda í yfirbragð byggðarinnar þannig að nýbyggingar verði hluti af núverandi heild.

Þeir sem vilja byggja í Fjallabyggð greiða lágt lóðarúthlutunargjald ásamt byggingarleyfisgjaldi auk stofngjalda vatns- og fráveitu. Engin gatnagerðargjöld verða innheimt til loka árs 2024. Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð sem er ört vaxandi bæjarfélag með rúmlega tvö þúsund íbúa og afþreyingarmöguleikar eru nánast ótæmandi.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum þjónustugátt Fjallabyggðar www.fjallabyggd.is og er umsóknarfrestur til og með 10. júní 2024.

Við úthlutun verður farið eftir reglum um úthlutun lóða í Fjallabyggð dags. 27. nóvember 2023.

Nánari upplýsingar gefur Ármann V. Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar (armann@fjallabyggd.is) eða Íris Stefánsdóttir (iris@fjallabyggd.is) í síma 464-9100.

Lóðir til úthlutunar:

Heiti lóðarStærð lóðarHúsagerðFjöldi hæðahámarks bygg. magn
Hávegur 61919 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Suðurgata 64661 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Suðurgata 67725 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Suðurgata 69766 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Suðurgata 73825 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Suðurgata 79-81725 fm x2Parhús2 hæðir250 fm x2
Suðurgata 83822 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Suðurgata 85822 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Suðurgata 89759 fmEinbýli2 hæðir270 fm
Laugarvegur 29753 fmEinbýli2 hæðir270 fm
Laugarvegur 40893 fmEinbýli2 hæðir250 fm
Hafnargata 30582 fmEinbýli2 hæðir240 fm

Sjá nánar: HÉR