Viðvaranir vegna talsverðrar eða mikillar rigningar eru í gildi á norðanverðu landinu og varað er við vatnavöxtum og hættu á skriðuföllum á því svæði.

Sérstaklega hefur Ólafsfjörður fengið sinn skerf af úrkomu en nú um kl 14:00 í dag höfðu mælst tæplega 140mm á 24 tímum segir á vefsíðu Veðurstofa Íslands.

Áframhaldandi skriðuhætta á norðanverðu landinu

Skráð þann 4. júní 2025

  • Áfram skriðuhætta á Norðurlandi og Norðausturlandi
  • Talsverðri úrkomu enn spáð á svæðinu næsta sólarhring
  • Snjókoma í hæstu fjöll næstu daga
  • Tvær skriður hafa verið tilkynntar og tvö snjóflóð

Talsverð úrkoma hefur fallið á norðanverðu landinu síðustu tvo sólarhringa, úrkoma hefur mikið til fallið sem snjór til fjalla og rigning á láglendi og neðan 300 m. Eins og spár gerðu ráð fyrir, stytti fyrst upp á Austfjörðum en enn rignir á norðanverðu Austurlandi og á Norðurlandi. Mest uppsöfnuð úrkoma síðasta sólarhringinn var í Ólafsfirði rúmlega 130 mm en talsvert minna hefur safnast í Siglufirði eða um 46 mm. Fáar tilkynningar hafa borist skriðuvakt Veðurstofunnar. Lítil aurspýja féll í nótt í vegskeringu við Ólafsfjarðarveg en einnig hafa fallið tvö lítil snjóflóð í Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði. Ein aurspýja féll í lækjarfarveg í Norðfirði í gær.

Spáð er áframhaldandi úrkomu á norðanverðu landinu þar sem snjóa mun í efri hluta fjalla en rigna neðar. Gera má ráð fyrir talsverðri rigningu og vatnavöxtum næstu daga þó draga muni úr úrkomu á Norðurlandi á föstudag. Gera má ráð fyrir að skriðuhætta á Austfjörðum fari minnkandi en áfram er í gildi viðvörun vegna skriðuhættu og vatnavaxta á Norðurlandi og Norðausturlandi.

Mynd/af fb. síðu Veðurstofu Íslands