Hópur sjö MTR-nemenda og tveggja kennara verður í Lettlandi þessa viku og tekur þátt í Erasmus+ verkefni.

Markmið þess er að þjálfa nemendur í virkri þátttöku og kenna þeim að axla ábyrgð í lýðræðisþjóðfélagi.

Þátttakendur eru nemendur framhaldsskóla í Grikklandi og Tékklandi auk Lettlands og Íslands.

Verkefnið er að hefjast en mun standa í tvö ár. Í fyrsta hlutanum verður fjallað um borgaralega ábyrgð, starf sjálfboðaliða og kosningar.

Nemendahópurinn frá MTR ætlar að kynna starf björgunarsveitanna á Íslandi auk þess að segja frá landi og þjóð, Fjallabyggð og skólanum sínum.

Af vefsíðu Menntaskólans á Tröllaskaga, mtr.is