Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af MUNA speltmúslí með trönuberjum, vegna þess að myglueitrið okratoxín greindist yfir mörkum í sultanas rúsínum sem eru í vörunni. Icepharma hf. hefur í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna. 
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: MUNA
  • Vöruheiti: Múslí spelt með trönuberjum
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.01.2025
  • Lotunúmer: BN52441
  • Nettómagn: 500 g
  • Framleiðandi: Horst Bode Import-Export GmbH (Bode Naturkost)
  • Framleiðsluland: Þýskaland
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Icepharma hf., Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.
  • Dreifing: Nettó, Þín Verslun-Kassinn, Melabúðin, Kjörbúðin, Krambúðin, Iceland, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup.