Nemendur í 5. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar gerðu sér lítið fyrir og settu á svið þrjú leikrit fyrir páska: Rauðhettu, Næturgalann og Söguna af Hlini kóngssyni.
Nemendur sýndu leikritið á sal skólans við Norðurgötu fyrir 1. – 4. bekk og starfsfólk við góðar undirtektir.
Nemendur höfðu áður á þessu skólaári sett á svið leikritið Landvættirnar við ljóð eftir Þórarin Eldjárn.
Sjá myndir og myndbönd af leikritunum hér
Á myndinni er 5. bekkur ásamt umsjónarkennara