Í síðustu viku fengu nemendur 6. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar kennslu í endurlífgun.
Árið 2015 réðst Endurlífgunarráð Evrópu (ERC), með stuðningi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), í átak nefnt Kids save lives, í þeim tilgangi að hvetja þjóðir heims til þess að innleiða markvissa endurlífgunarkennslu meðal grunnskólabarna.
Árið 2018 ákvað Þróunarmiðstöð íslenskra heilsugæslu að innleiða sambærilegt verklag hérlendis í gegnum skólaheilsugæslu, undir heitinu Börnin bjarga.
Kennsla í endurlífgun er orðinn hluti af skyldufræðslu skólahjúkrunarfræðinga um allt land.
Myndir/Grunnskóli Fjallabyggðar