Nótan 2023 var haldin í Hörpu sunnudaginn 19. mars og fóru þær Lea Dalstein Ingimarsdóttir, Steinunn Sóllilja Dagsdóttir, Írena Rut Jónsdóttir, Sóley Inga Sigurðardóttir fyrir hönd Tónlistarskólans á Tröllaskaga.

Stúlkurnar fluttu lagið Sweet Dreams (Are made of This) og er lagið eftir Eurythmics sem hefur starfað frá 1984 með Annie Lennox og Dave Stewart í farabroddi hljómsveitarinnar.

Atriðið sem var flutt “acapella” (sungið, án undirleiks) var virkilega vel sungið og góð útsetning eftir Mathias Julien Spoerry söngkennara skólans, Deke Sharon og Anne Raugh.

Hér er linkur á Nótuna og viðtal á ruv.is https://www.youtube.com/watch?v=2RXFq_jm_No

Mynd/TÁT