Að morgni sunnudags 14. maí kom í ljós að gerð hafði verið netárás á tölvukerfi Dalvíkurbyggðar.
Atvikið var tilkynnt til netöryggissveitarinnar CERT-IS og var einnig haft samband við netöryggisfyrirtæki sem tók að sér neyðaratvikastjórnun.
Kerfi hafa nú verið tryggð gegn frekari árásum og endurreisn stendur yfir, samhliða rannsókn á uppruna árásarinnar. Endurreisn felur í sér herðingu á vörnum, þar á meðal lykilorðabreytingar, auknar auðkenningarkröfur og takmörkun á aðgengi að tilteknum þjónustum. Búast má við minniháttar óþægindum fyrir notendur af þessum orsökum.
Dalvíkurbyggð leggur áherslu á að ekkert bendir til að árásaraðilinn hafi komist yfir gögn í kerfum. Séu taldar vísbendingar um slíkt verða hagsmunaaðilar og Persónuvernd upplýst.