Fyrr á árinu gekk Eining-Iðja frá kaupum á nýrri sjúkraíbúð í Reykjavík og nú í vikunni var hún tekin í notkun. Nýja íbúðin er þriggja herbergja, 85 fermetrar að stærð, á 2. hæð í Sóltúni 30, en í húsinu á félagið fyrir eina sjúkraíbúð á 3.hæð.
Nýja íbúðin var öll tekin í gegn, m.a var baðherbergi endurnýjað með tilliti til fatlaðra, skipt var um eldhúsinnréttingu og gólfefni, íbúðin máluð o.fl.
Félagið á einnig eina sjúkraíbúð í Ásholti og er því nú með þrjár sjúkraíbúðir í Reykjavík.
Mynd: Eining-Iðja