Fjallabyggð auglýsir lausar til umsóknar 6 lóðir fyrir fjölbýlishús og eina einbýlishúsalóð. Lóðirnar eru staðsettar á gamla malarvellinum miðsvæðis í bænum. Í nýju deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir þremur fjögurra íbúða húsum á tveimur hæðum, þremur 4-5 íbúða húsum á tveimur hæðum ásamt bílgeymslum og einu einbýlishúsi ásamt bílskúr.
Þeir sem vilja byggja í Fjallabyggð greiða lágt lóðarúthlutunargjald ásamt byggingarleyfisgjaldi og greiða síðan gatnagerðar- og tengigjöld. Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð sem er ört vaxandi bæjarfélag með rúmlega tvö þúsund íbúa og afþreyingarmöguleikar eru nánast ótæmandi.
Skipulagsuppdrætti ásamt skilmálum má finna á heimasíðu Fjallabyggðar: www.fjallabyggd.is/malarvollur
Nánari upplýsingar gefur Ármann V. Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar (armann@fjallabyggd.is) eða Gunnar I. Birgisson (gunnarb@fjallabyggd.is) í síma 464-9100.
Sjá eldri frétt: Íbúðasvæði á gamla malarvellinum