Á fundi stjórnar Hornbrekku kom fram að Birna S. Björnsdóttir er ráðin nýr hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku.

“Stjórn Hornbrekku býður Birnu Sigurveigu Björnsdóttur velkomna til starfa. Birna tók við forstöðu Hornbrekku þann 14. ágúst sl. Birna fór yfir ýmis mál tengd starfsmannahaldi sem innra starfi stofnunarinnar. Hefur hún þegar hafist handa við að yfirfara starfslýsingar og verða þær lagðar fyrir starfsmenn á næstunni. Einnig verður verklag og verkferlar teknir til endurskoðunar.

Stjórn Hornbrekku lýsir yfir fullum stuðningi við hjúkrunarforstjóra og forstöðumanns varðandi áform hennar sem lúta að starfsmannahaldi og innra starfi Hornbrekku.
Birna upplýsti stjórn um að umönnunarklukkustundir Hornbrekku reiknast nú 4,7 klukkustundir á hvern á íbúa í hjúkrunarrými. Uppfyllir Hornbrekka þar með viðmið um mönnun á hjúkrunarheimilum skv. skilgreiningu Landlæknisembættisins.

Útlit er fyrir að á næstunni verði öll hjúkrunar- og dvalarrými Hornbrekku, fullnýtt af einstaklingum með vistunarmat. Er hér um að ræða talsverða breytingu á nýtingu rýma Hornbrekku, þar sem undan farin ár hafa ávalt nokkur fjöldi rýma verið ráðstafað í fyrir hvíldar- og skammtímavistun.”

 

Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir
Mynd: Gunnar Smári Helgason