Valur Freyr Halldórsson hefur tekið við starfi slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Húnaþings vestra.
Valur hefur víðtæka reynslu af störfum sem slökkviliðsmaður og bráðaliði. Hann hefur lokið námi frá Sjúkraflutningaskólanum og hefur löggildingu til að starfa sem sjúkraflutningamaður EMT-B/EMT-I. Hann hefur einnig lokið námi frá Brunamálaskólanum og hefur löggildingu til að starfa sem slökkviliðsmaður. Hann hefur lokið Bs námi í hjúkrunarfræði og hefur löggildingu til að starfa sem hjúkrunarfræðingur. Jafnframt hefur hann lokið bráðatækninámi frá National Medical Education and Training Center í Boston og hefur löggildingu til að starfa sem bráðatæknir.
Valur Freyr starfaði sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður við Slökkvilið Akureyrar á árunum 2002-2022 og var aðstoðarvarðstjóri hluta þess tíma á árunum 2007-2010 og á árinu 2022. Hann starfaði sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild á árinu 2016. Frá 2016 til 2022 starfaði hann sem verkefnisstjóri hjá Sjúkraflutningaskólanum í hlutastarfi og frá 2022-2023 sem fag- og verkefnisstjóri skólans í fullu starfi. Hann hefur jafnframt starfað sem leiðbeinandi hjá Rauða krossinum (frá 2005), Sjúkraflutningaskólanum (frá 2006) og hjá Evrópska endurlífgunarráðinu sem ILS/ALS – EPILS/EPALS leiðbeinandi (frá 2012).
Mynd/Húnaþing Vestra