Nýlega auglýsti Eining-Iðja að laust væri til umsóknar starf þjónustufulltrúa á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð og bárust átta umsóknir um starfið.

Ráðningarfyrirtæki, ásamt fulltrúum frá félaginu, sá um allt ferlið og bauð fjórum umsækjendum í viðtöl.

Þórey Sigurjónsdóttir var að þeim loknum ráðin í starfið og mun hún hefja störf 15. júní næstkomandi.

Mynd/Eining- Iðja