Elías Pétursson nýráðinn bæjarstjóri Fjallabyggðar mætti til starfa í gær, mánudaginn 9. mars.

Elías hefur síðustu tæp sex ár, starfað sem sveitarstjóri Langanesbyggðar.

Þar á undan var hann sjálfstætt starfandi ráðgjafi, meðal annars hjá Mosfellsbæ. 

Hann er fæddur á Þórshöfn 1965.

Forsíðumyndina tók Björn Valdimarsson af Elíasi síðdegis í gær, á skrifstofu hans í Ráðhúsinu.

Forsvarsmenn Trölla.is bjóða Elías Pétursson velkominn til starfa.

Mynd: Björn Valdimarsson