Í gær var Eyjólfur Eyjólfsson, umsjónarmaður Þjóðlagasetursins, við upptökur í tanki þeim sem stendur milli húsa Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði.
Eyjólfur hljóðritaði þar eigin verk sem hann hefur samið fyrir gjörningaverk, með samfélagslegri skírskotun, fyrir hollenska listakonu sem ber nafnið Wilma Marijnissen.
Sýningar á verkinu verða erlendis í september. Þar mun hópur fólks hreyfa sig innan um stóra steypu-skúlptúra á meðan tónlistin er leikin.
Verkið heitir TERRA MATER, sem er latína og þýðir Móðir Jörð. Gjörningurinn er með tilvísun í forneskju og goðafræði. Wilma fékk Eyjólf til að semja og leika tónlist á langspil, sem tengist miðalda tónheimi.
Eyjólfur notar einnig “lúppu” sem er raftónlistarleg nálgun við verkefnið. Með því má láta eitt langspil hljóma margfalt og mynda þannig fjölbreytilegan og tilkomumikinn hljóm. Hann syngur einnig með í sumum verkanna.
Eyjólfur leggur einnig stund á mastersnám í þjóðfræði við Háskóla Íslands, svo langspilið er honum kært á ýmsa vegu.
Frétt og myndir: Gunnar Smári Helgason