Einar Brynjólfsson oddviti Pírata í norðausturkjördæmi ætlar ekki að gefa kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Frá þessu greinir Einar í færslu á facebook síðu sinni.

“Í vor verður gengið til kosninga til sveitarstjórna, eins og alþjóð veit. Ég mun ekki gefa kost á mér í höfuðborg hins bjarta norðurs, aldrei þessu vant, en vil hvetja öflugt fólk sem brennur fyrir íbúalýðræði og vönduðum vinnubrögðum til að láta að sér kveða hjá okkur Pírötum. Tökum þátt í lýðræðinu!”

Einar var kjörinn á þing fyrir Pírata árið 2016. Hann leiddi lista Pírata í Norðausturkjördæmi með glæsibrag í alþingiskosningunum í fyrra en hafði ekki erindi sem erfiði. Nú hyggst hann snúa sér að öðrum verkefnum og ætlar að klára M.A. námið í lögfræði við Háskólann á Akureyri.

Einar er þó ekki alveg hættur afskiptum af stjórnmálum en hann situr í stjórn Pírata í Norðausturkjördæmi og mun verða arftökum sínum innan handar. Píratar eru um þessar mundir að auglýsa eftir frambjóðendum í prófkjöri Pírata á Akureyri til sveitarstjórnarkosninganna í vor, en næsta föstudag  4. febrúar verða Píratar með opið hús í Ketilhúsinu á Akureyri þar sem þau Einar, Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmenn Pírata ásamt Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur bæjarfulltrúa Pírata í Kópavogi munu taka á móti áhugasömum og jafnvel tilvonandi bæjarstjórnarfulltrúum Pírata.

Viðburðurinn er opinn öllum og hefst kl.19 á morgun, föstudaginn 4. febrúar og stendur frameftir kvöldi.

Veitingar eru í boði Pírata.

Viðburðurinn: https://fb.me/e/1cAqO7bX8

Meira um prófkjör Pírata: https://piratar.is/profkjor2022/


Aðsent