Matvælastofnun varar við neyslu á Sesame fibre round crispbread hrökkbrauði. Hrökkbrauðið inniheldur varnarefnið etýlen oxíð sem ekki er leyfilegt í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið ÍSAM ehf., sem flytur inn vöruna, innkallar hana í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Finn Crisp
  • Vöruheiti: Sesame & Fibre Round Crispbread
  • Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar frá 24.1.2021 til og með 3.9.2021
  • Strikamerki: 6410500097099
  • Nettómagn: 250g
  • Framleiðandi: Lantmånnen Cerealia
  • Framleiðsluland: Finnland
  • Innflytjandi: ÍSAM, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir um allt land

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri ÍSAM á netfanginu svandis hjá isam.is eða í síma 522 2700.

Ítarefni

Skoða á mast.is