Matvælastofnun varar við neyslu á Himnesku Lífrænu hvítu tahini (250g) sem Aðföng flutti inn. Ólöglega varnarefnið etýlen oxíð greindist í sesamfræjum sem notuð voru við framleiðsluna. Fyrirtækið hefur hafið innköllun í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Himneskt
  • Vöruheiti: Lífrænt Hvítt Tahini
  • Strikamerki: 5690350060028
  • Nettómagn: 250g
  • Best fyrir dagsetning: 31.03.2023
  • Lotunúmer: L3320077
  • Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup og Kaupfélag Skagfirðinga

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Ítarefni

Skoða á mast.is