Atvinnumála- og kynningaráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Nýsköpunar- og þróunarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2021.

Markmiðið með sjóðnum er að stuðla að aukinni fjárfestingu, nýsköpun og þróun í atvinnulífinu í sveitarfélaginu með því að styðja við þá aðila sem hyggja á nýsköpun í atvinnulífinu í formi nýrrar vöru og/eða þjónustu. Þá er að því stefnt að fjölga störfum í sveitarfélaginu og auka fjölbreytni í atvinnulífinu. Til þess að stuðla að því að framangreind markmið náist hyggst sjóðurinn styrkja verkefni á sviði nýsköpunar í atvinnulífinu í samræmi við reglur.

Reglur sjóðsins er að finna hér.

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk. og sótt er um styrk í gegnum íbúagáttina okkar, min.dalvikurbyggd.is.

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir þjónustu- og upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar, Íris Hauksdóttir, í síma 460-4908 eða í tölvupósti á irish@dalvikurbyggd.is