Orange Chicken
- 900 gr kjúklingabringur
- 2 eggjahvítur
- 2 tsk salt
- 2 tsk sykur
- 2 bollar maísmjöl
- 5 bollar olía (vegetable oil) til að steikja í
Skerið kjúklingabringurnar í ca 1,5 cm bita og leggið til hliðar. Hrærið vel saman eggjahvítum, salti og sykri í skál og bætið kjúklingabitunum í skálina. Hitið olíuna í potti upp í 175-190 gráður (eða hitið olíuna bara vel við hæsta hita). Setjið maísmjölið í hreinan plastpoka og bætið marineruðu kjúklingabitunum út í. Hristið vel þannig að maísmjölið þeki kjúklingabitana. Djúpsteikið kjúklingabitana í smáum skömmtum í einu þar til þeir verða gylltir á lit. Það tekur um 2-3 mínútur.
Þegar kjúklingabitarnir eru tilbúnir eru þeir veiddir upp úr pottinum og lagðir á disk klæddan eldhúspappír. Endurtakið með restina af bitunum.
Hitið sósuna (tæplega hálf flaska fyrir þessa uppskrift) í víðum potti og leyfið henni að sjóða við vægan hita í nokkrar mínútur. Hrærið reglulega í pottinum. Bætið djúpsteiktu kjúklingabitunum út í og hrærið vel þannig að þeir hjúpist af sósunni. Berið fram með hrísgrjónum og salati.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit