Jarðskjálftahrinan úti fyrir Norðurlandi heldur áfram en kl.19:26 í kvöld varð skjálfti sem mældist M5,6. Hann fannst mjög víða um landið en engar tilkynningar hafa borist um tjón eða slys á fólki.

Í fjöllum næst upptökum skjálftans hefur orðið vart við grjóthrun og er ástæða til að vara sérstaklega við þeirri hættu. Fólk sem hyggur á útivist á svæðinu ætti að hafa sérstakan vara á sér og líka þau sem ferðast um vegi undir hlíðum.

Heildarfjöldi jarðskjálfta á svæðinu það sem af er nálgast núna 800 þar af eru 56 stærri en M3.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta.

Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum, sjá hér https://www.almannavarnir.is/natturuva/jardskjalftar/varnir-gegn-jardskjalfta/

Á vef Veðurstofunnar er hægt að senda inn tilkynningar hafi fólk fundið fyrir jarðskjálfta og sjá yfirlit yfir jarðskjálfta síðustu 48 klst. www.vedur.is

Skjáskot: vedur.is