Ærslabelgurinn verið blásinn upp fyrir unga fólkið á Hvammstanga og nágrenni. 

Bent er á að ganga vel um og fara eftir reglum. Allir eru á eigin ábyrgð á ærslabelgnum og börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna.

  • Skóbúnað skal geyma fyrir utan belginn á meðan hoppað er. Ekki er leyfilegt að hoppa á belgnum í skóm.
  • Í rigningu og bleytu er ekki æskilegt að hoppa á belgnum, þar sem hann getur orðið mjög sleipur.
  • Halda skal svæðinu snyrtilegu. Muna að taka allt með sér þegar farið er; föt, sokka og rusl.
  • Sýna hvort öðru tillitssemi og virðingu á belgnum.

Ærslabelgurinn verður uppblásinn frá hádegi til kl. 20:00 alla daga.

Mynd: Húnaþing vestra