Þann 15. september bættist við góður gripur á safnasvæði Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum þegar Örkin var sett niður á safnasvæðið. Um er að ræða bát í eigu Guðjóns Kristinssonar frá Dröngum en smíðaður af föður hans Kristni Jónssyni.

Báturinn var smíðaður í fjárhúsunum á Seljanesi og lauk smíðinni árið 1981. Er hér um mjög merkilegan bát að ræða en Örkin mun vera, samkvæmt bestu heimildum, síðasti báturinn sem smíðaður var úr rekavið. Örkin var síðast gerð út á handfæri og reyndist gott og farsælt sjóskip.

Guðjón hefur lánað safninu bátinn og mun Örkin ugglaust draga að sér athygli vegfarenda og gesta safnsins. Benjamín safnvörður tók vel á móti Örkinni enda gjörkunnugur hverju borði og saum í handaverki föður hans.

Á myndunum má sjá þá feðga standa við bátinn með 40 ára millibili.​

Myndir/ Húnaþing vestra