Leigufélagið Bríet og Húnaþing vestra óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða.
Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Hvammstanga og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.
Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir föstudaginn 9. apríl 2021.
Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.
Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson byggingafræðingur hjá HMS (elmar.erlendsson@hms.is).