Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögreglumanns við embættið, með starfsstöð á Siglufirði. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna frá og með 1. maí 2021 með skipun í huga að 3 mánaða reynslutíma loknum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigum við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu.
Hæfnikröfur
Umsækjandi skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Góð samskipta- og samvinnuhæfni Lausnamiðað og jákvætt viðhorf Sveigjanleiki og drifkraftur Skipulagshæfni og vandvirkni í vinnubrögðum Aukin menntun sem nýtist í starfi er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir. Um er að ræða vaktavinnu með bakvaktaskyldu, þannig að viðvera á Siglufirði, Ólafsfirði eða Dalvík á meðan á bakvaktatörn stendur er skilyrði. Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglunnar og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur hvattar sérstaklega til að sækja um. Vakin er athygli á að engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem starfsmenn lögreglu verða að njóta, sbr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Kristján Kristjánsson – krkr@logreglan.is – 4442800
Jóhannes Sigfússon – js02@logreglan.is – 4442800
Smelltu hér til að sækja um starfið