Súkkulaðimús með Oreo og sætum rjóma (uppskrift fyrir 5)

Það sem þarf er:

Gerið súkkulaðimús (uppskriftin er í slóð hér að ofan, hún er einföld og góð) og leggið til hliðar.

Þeytið rjóma og flórsykur saman og leggið til hliðar.

Myljið Oreo kexið í matvinnsluvél eða með öðrum hætti.

Setjið súkkulaðimús í botn á glasi eða skál, rjóma yfir og síðan Oreo mulning. Setjið síðan annað lag af súkkulaðimús, rjóma yfir og endið á Oreo.

Geymið í ísskáp þar til borið fram.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit