Þjónustusvæði Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar auglýsir eftir fötluðu fólki sem vill starfa í notendaráði fatlaðs fólks á þjónustusvæðinu.
Starf notendaráðs er að gefa álit sitt á stefnumótun um málefni fatlaðs fólks Í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð, ásamt því að taka upp mál að eigin frumkvæði.
Þeim sem vilja taka þátt verður boðið upp á námskeið þar sem þátttakendur eru undirbúnir fyrir setu í notendaráði. Á námskeiðinu verður farið yfir þætti er varða lög og reglur, mannréttindi, margbreytileika og þjónustu við fatlað fólk.
Umsóknarfrestur er til 20. september 2019.
Frekari upplýsingar veita:
Þórhalla Franklin Karlsdóttir, ráðgjafi hjá félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, netfang: tota@dalvikurbyggd.is. Sími: 460-4900
Helga Helgadóttir, ráðgjafi hjá félagsþjónustu Fjallabyggðar, netfang; helgah@fjallabyggd.is. Sími: 464-9100
Mynd: Fjallabyggð