Samfélagsverðlaun Skagafjarðar verða veitt í níunda sinn á setningu Sæluviku í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 28. apríl nk. en Samfélagsverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2016.

Skagafjörður óskar eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar, en samfélagsverðlaunin eru árlega veitt einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Tilnefningar eru sendar inn með því að fylla út rafrænt skjal en einnig er í boði að senda tilnefningar á netfangið heba@skagafjordur.is eða skila skriflega í afgreiðslu Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 17-21.

Frestur til þess að senda inn tilnefningar er til og með 19. apríl nk.

Eftirtaldir hafa verið sæmdir Samfélagsverðlaunum Skagafjarðar fyrir sinn þátt í að efla skagfirskt samfélag:

2023 – Rögnvaldur Valbergsson

2022 – Helga Bjarnadóttir

2021 – Stefán R. Gílsason

2020 – Helga Sigurbjörnsdóttir

2019 – Geirmundur Valtýsson

2018 – Hjónin Árni Stefánsson og Herdís Klausen

2017 – Kristmundur Bjarnason

2016 – Stefán Pedersen

Forsíðumynd: Handhafi Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2023, Rögnvaldur Valbergsson ásamt eiginkonu sinni Hrönn Gunnarsdóttur.

Mynd/Skagafjörður.is