Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir er sendur út í beinni útsendingu frá Studio 7 á Englandi á föstudögum frá klukkan 8 til 10 hér á FM Trölla.

Oskar spilar frábæra tónlist úr öllum áttum og kíkir á helgarveðrið. Hann skoðaðar líka forsíður íslensku og bresku blaðanna, býður hlustendum að taka þátt í morgunleikfimi, og segir sögur af fólki utan úr heimi.

Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.