Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Ólafsfjarðarmúla vegna snjóflóðahættu síðdegis í dag. Samkvæmt tilkynningu sem barst klukkan 17:28 er ástandið metið ótryggt og geta aðstæður breyst með skömmum fyrirvara.
Ökumenn eru hvattir til að fara varlega um svæðið og fylgjast vel með upplýsingum frá Vegagerðinni um þróun mála. Ekki er útilokað að grípa þurfi til lokana ef hættustig eykst.





