Á Akureyri er ekki nóg með að meðalhitinn í júlí hafi slegið öll met með 14,3°C, heldur stefnir líka í met í ágúst segir á vefsíðu Bliku.is.

Meðalhitinn nú endar sennilega í 14,0°C (eða 14,1°C). Fyrra met var 13,2°C í ágúst 1947.

Líkt og í júlí er gamla metið slegið rækilega.En ekki nóg með það því hiti sumarið (júní-ágúst) stefnir líka í hæstu hæðir eða 12,7°C.

Sumarið 1933 hefur lengið verið í minnum haft fyrir norðan með sínar 12,2°C fyrir sömu mánuði.

Og þetta næst jafnvel þó svo að júní hafa verið kaldur framan af, um 1 stigi undir meðallagi fyrstu 20 dagana (8,2°C).

Allt saman er þetta með miklum ólíkindum!