Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á eftirfarandi:

Veðurstofa Íslands lýsir hér með yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á svæðinu frá Fljótum og til og með Hjaltadal. Einnig á Reykjaströnd.

Fregnir hafa borist af töluverðri snjósöfnun á þessu svæði. Vitað er um 2 snjóflóð sem fallið hafa á Siglufjarðarveg norðan Fljóta.

Á þessum svæðum getur verið varhugavert að vera á ferðinni á meðan veðrið liggur í þessari N-NA lægu átt með snjókomu og éljum.