Fólkið á Norðurlandi vestra

eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.

Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.

FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Áskel Heiðar Ásgeirsson.

Það er óhætt að segja að í Skagafirði drjúpi saga af hverju strái og það er einmitt hún sem er í lykilhlutverki á sýningunni 1238 sem opnaði árið 2019 á Sauðárkróki.

Þar eru sögunni gerð skil og miðlað með nýjustu tækni á afar vel heppnaðan hátt.

Áskell Heiðar Ásgeirsson segir okkur frá sýningunni og því sem þar er boðið upp á.

Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.

feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml